Bjartar vonir rætast
er við göngum bæinn
brosum og hlæjum glaðir
vinátta og þreyta mætast
höldum upp á daginn
og fögnum tveggja ára bið
fjarlægur draumur fæðist
borðum og drekkum saddir
og borgum fyrir okkur
með því sem við eigum í dag
setjumst niður spenntir
hlustum á sjálfa okkur slá
það virðist enginn hlusta
þetta er allt öðruvísi
við lifðum í öðrum heimi
þar sem vorum aldrei ósýnileg
nokkrum dögum síðar
við tölum saman á ný
en hljóðið var ekki gott
við vorum sammála um það
sammála um flesta hluti
við munum gera betur næst
þetta er ágætis byrjun.
Ágætis Byrjun - Sigur rós.
On September 13 2009
3 Views
draw
Drawings. Desenhos. Dibujos. Dessins.
macrographics
A fotolog dedicated to Macro pictures.